© 2026 Tix Miðasala

Menningarfélag Akureyrar
•
20. nóvember
Sala hefst
29. apríl 2026, 10:00
(eftir 17 klukkustundir)




Hlustið á tónlist George Michael sem þið þekkið og elskið flutta af stórkostlegum söngvara og hljómsveit sem er með upprunalegan bassaleikara Wham innanborðs.
Sýningin ‘Celebrating George Michael’ hefur tryllt áhorfendur í Bretlandi og um alla Evrópu og nú kemur hún til Íslands. Frá smitandi gleði Wham! til tilfinningaríkrar snilldar George Michael á sólóferli hans, þá er þessi sýning hátíð til heiðurs tónlistar, minninga, og mannsins bak við þetta allt, flutt af hrífandi nákvæmni af hinum magnaða Steve Mitchell.
Flutningur Steve, sem er almennt álitinn sem einna besti flytjandi laga George Michael í heiminum, er kraftmikill og tilfinningaríkur, þar sem hann endurskapar ekki einungis lögin heldur einnig tilfinninguna fyrir flutningi George Michael á sviðinu á mismunandi tímabilum, sem sýnir tímalausa afleifð eins besta popptónlistarmanns sögunnar.
Dave West, fyrrum bassaleikari Wham, bætir enn meiri alvöru við sýninguna, en hann starfaði með George Michael og Andrew Ridgeley í fyrstu upptökum á Wham Rap, Careless Whisper, and Club Tropicana. Með honum í fjögurra manna hljómsveit eru frábærir tónlistarmenn sem hafa komið fram og spilað með mörgum af fremstu tónlistarmönnum heims m.a. Nile Rodgers & Chic, Brian May, Simply Red, Kylie Minogue og mörgum fleiri.
Steve Michell mun ásamt hæfileikaríkum bakraddarsöngvurum flytja öll vinsælustu lögin, frá danslögum til ballaða sem gerðu George Michael að stórstjörnu í heiminum.
"Steve hefur rödd George Michael, svo raunverulega og ótrúlega sem það hljómar. Lokið augunum og þetta er George Michael." BBC

