Celebrating George Michael

Harpa

21. nóvember

Miðaverð frá

6.990 kr.

Njótið tónlistar George Michael í flutningi stórkostlegs söngvara og hljómsveitar sem er með upprunalegan bassaleikara Wham innanborðs.


Sýningin ‘Celebrating George Michael’ hefur heillað áhorfendur í Bretlandi og um alla Evrópu og nú kemur hún til Íslands. Sýningin heldur minningu George Michael á lofti og rekur feril hans allt frá gleðipoppi Wham! til tilfinningaþrunginna hátinda á sóloferli hans.
Steve Mitchell bregður sér hér í hlutverk poppgoðsins, en hann er talinn vera einn besti flytjandi laga George Michael í heiminum. Hann er kraftmikill og tilfinningaríkur, rétt eins og fyrirmyndin. Hann flytur ekki einungis lögin heldur endurlífgar einnig anda George Michael og viðheldur þannig arfleifð eins besta popptónlistarmanns sögunnar.


Dave West, fyrrum bassaleikari Wham, eykur enn á nándina við George Michael, en hann starfaði með honum og Andrew Ridgeley í fyrstu upptökunum á Wham Rap, Careless Whisper og Club Tropicana. Með honum í hljómsveitinni eru svo frábærir hljóðfæraleikarar sem hafa komið fram með mörgum af fremstu tónlistarmönnum heims, svo sem Nile Rodgers & Chic, Brian May, Simply Red, Kylie Minogue og mörgum fleiri.
Steve Mitchell mun, ásamt hæfileikaríkum bakraddasöngvurum, flytja öll vinsælustu lögin, allt frá danssmellum til ballaða, sem gerðu George Michael að stórstjörnu um allan heim.


„Steve hefur rödd George Michael, hversu ótrúlega sem það kann að hljóma. Lokið bara augunum og þá er eins og þið séuð að hlusta á George Michael." BBC

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger