© 2026 Tix Miðasala
Kaplakriki
•
17. október
Sala hefst
1. maí 2026, 10:00
(eftir 2 daga)




Of Monsters And Men halda stórtónleika í Kaplakrika þann 17. október næst komandi. Tilefnið er að ljúka heimstónleikaferðalagi á sínum heimaslóðum og fagna eins árs afmæli fjórðu breiðskífu hljómsveitarinnar.
Þau gáfu út sína fjórðu breiðskífu, All Is Love And Pain In The Mouse Parade, í október 2025 og hafa verið að fylgja henni eftir á 12 mánaða tónleikaferðalagi um heiminn. Tónleikarnir hafa fengið frábærar viðtökur og gagnrýnendur lofa hljómsveitina fyrir einstaka tengingu við áhorfendur og kraftmikið tilfinningalegt ferðalag frá upphafi til enda.
Hljómsveitin er spennt að halda loksins tónleika á Íslandi og fagna eins árs afmæli plötunnar upp á dag þann 17. október. Þetta er því einstakt tækifæri til þess að fagna afmælinu með þeim og sjá þau taka öll sín bestu lög!
Ásamt hljómsveitinni koma fram tvær öflugar íslenskar tónlistarkonur, Árný Margrét og Rakel, sem báðar þekkja hljómsveitina vel og hafa hitað upp fyrir þau í Evrópu og í Bandaríkjunum.
Aldurstakmark er 20 ára

