© 2026 Tix Miðasala

Hannesarholt
•
14. október
Miðaverð frá
3.900 kr.




Einstök tónlistarupplifun í Hannesarholti þar sem áheyrendum er boðið í ferðalag um menningarheima austur-Evrópu og Anatólíu. Þrjú ólík en áhrifamikil verk munu hljóma en á efnisskránni eru sellósónata eftir Dmitri Shostakovich, sellósónata eftir Nikolai Myaskovsky og verkið Four Cities eftir Fazıl Say.
Í sellósónötu Shostakovich skiptast á angurværð og kaldhæðni, dramatískar tilfinningar sem eru einkennandi fyrir tónskáldið. Myaskovsky leikur sér að hlýjum og rómantískumi tónum, þar sem sellóið fær að njóta sín í ríkum og ljóðrænum línum. Four Cities eftir Fazıl Say er hins vegar litrík og nútímaleg tónsmíð sem sækir innblástur í ólíkar borgir og menningarheima, með rytmískum og kraftmiklum þáttum. Þetta verður kvöld þar sem fortíð og nútíð mætast, með tónum sem snerta hjartað og kveikja í ímyndunaraflinu.
Anna Þórhildur Gunnarsdóttir lauk B.Mus gráðu í píanóeinleik frá Listaháskóla Íslands, undir leiðsögn Peters Máté og Eddu Erlendsdóttur og MA-gráðu í píanóeinleik við Conservatorium Maastricht hjá prof. Katia Veekmans. Anna hefur hlotið margvíslega styrki, þ.á.m. úr Minningarsjóði Heimis Klemenzsonar og Henrïette Hustinx-hvatningarverðlaunini. Í dag starfar Anna sem píanókennari við Tónlistarskóla Hafnarfjarðar, ásamt kennslunni leggur hún stund á Suzuki píanókennaranám sem og Umhverfis- og auðlindafræði við Háskóla Íslands. Þórdís Gerður Jónsdóttir er sellóleikari sem hefur þá sérstöðu að leika jöfnum höndum sígilda tónlist og jazz. Sígildan sellóleik nam hún við Listaháskóla Íslands á árunum 2014-2017 og í konunglega danska konservatoríinu í Árósum, en þaðan lauk hún meistaragráðu sumarið 2021. Þórdís lauk burtfararprófi frá jazzdeild Tónlistarskóla FÍH vorið 2015 en í náminu lagði hún áherslu á spuna og tónsmíðar. Hún er stofnmeðlimur kammerhópsins Cauda Collective, sem hefur vakið eftirtekt fyrir frumlegt verkefnaval og útvíkkun á hlutverki hins klassíska flytjenda. Þórdís er hjúkrunarfræðingur, með viðbótardiplómu í lýðheilsuvísindum og meistaragráðu í bráðahjúkrun. Hún starfar í hlutastarfi við skólahjúkrun á vegum Heilsugæslu Höfuðborgarsvæðins við Menntaskólann við Hamrahlíð.

