© 2026 Tix Miðasala
Þjóðleikhúsið
•
16. júní
Miðaverð frá
3.900 kr.




Róshildur gefur út sína fyrstu breiðskífu Samferða og fagnar með tónleikum í Þjóðleikhúskjallaranum 16. júní.
Vertu samferða henni í gegnum katalóginn sem skyndilega óx með tíu laga vefnaðarverki sem kemur út á streymisveitum þann 5. maí 2026. Á tónleikunum verður vínyll til sölu á sérstakökum prís fyrir samferðarfólk sem þangað mætir.
Athugið, leynigestir gætu hafa húkkað sér far með Róshildi.
Frumraun Róshildar, EP platan (V2,2), sem kom út árið 2023, vann henni sess í íslensku tónlistarsenunni sem bæði höfundur og flytjandi, en hún var krýnd The One to Watch á The Reykjavík Grapevine verðlaununum. Síðan þá hefur hún komið fram á mörgum af helstu tónlistarhátíðum Íslands auk sóló-tónleika í Reykjavík, þar á meðal í Iðnó og Mengi.
Tónleikar Róshildar einkennast af síbreytilegum lifandi leik, þegar hún lúppar rödd sinni og hljóðfærum og dáleiðir áhorfendur með sínum einstöku frásagnaraðferðum í gegnum hljóð og orð. Vald Róshildar á íslenska tungumálinu er sérstakt þar sem hún nýtir sér vandlega valin orð og marglaga merkingar þeirra í hverju samhengi fyrir sig. Afurðin er ljóðræn, angurvær og draumkennd, með passlegum keim af kaldhæðni þegar við á.
Róshildur lofar kvöldstund fullri af nánd, tónum, töktum og sögum frá sköpunarferlinu.

