© 2026 Tix Miðasala

IÐNÓ
•
16. maí
Miðaverð frá
4.900 kr.




Ungfrúin Góða og Búsið
Ungfrúin góða og búsið er sex manna blúsband sem spilar rokkskotinn blús. Þau eru þekkt fyrir mjög fjölbreytt og skemmtilegt lagaval þar sem allir finna eitthvað við sitt hæfi. Nú verður talið í stórtónleika í Iðnó. Bandið flytur vandaða cover tónlist frá mörgum af þekktum blústónlistarmönnum heims, t.d:
Shemekia Copeland,
Etta James,
Beth Hart,
Susan Tedeschi
Maggie Bell o.fl.
Hljómsveitina skipa:
Kristjana Þórey Ólafsdóttir, söngur
Helgi Georgsson, píanó og söngur
Árni Björnsson, gítar
Jón Bjarki Bentsson, bassi
Aðalsteinn Snorrason, gítar
Skúli Thoroddsen, trommur
Hljómsveitin hefur starfað í núverandi mynd í rúm þrjú ár og komið fram reglulega með tónleika, t.d. Dillon, Ægir 220, Ölver, Krúttið, Bird, Krúserklúbburinn, Djúpið. Tekið þátt í Blúshátíð Reykjavíkur og Menningarnótt í Hörpu.
Þetta verður kvöld þar sem blúsinn ræður ríkjum og er von á mikilli
stemningu.

