© 2026 Tix Miðasala
Fríkirkjan í Reykjavík
•
20. maí
Miðaverð frá
7.900 kr.




Möntrusession í Fríkirkjunni
Velkomin á MöntruSession í Fríkirkjunni í Reykjavík þann 20. maí kl. 20:00.
Kvöldið verður helgað samhljómi, nærveru og sameiginlegri upplifun þar sem tónlist og möntrur flæða saman í fallegu rými Fríkirkjunnar. Boðið verður upp á kakó í upphafi kvölds, hljóðverk eftir Silvru og tóna sem opna rýmið og leiða okkur inn í stundina.
Í hlýrri og kyrrlátri stemningu fléttast saman frumsamin verk Láru og möntrurnar sem við þekkjum svo vel — í nýjum, fallegum útsetningum með fimm manna hljómsveit.
Þetta er kvöld fyrir þau sem vilja staldra við, anda dýpra og sökkva sér inn í hljóð, samveru og sameiginlega rödd.
Komdu eins og þú ert — til að hlusta, syngja með eða einfaldlega vera.
Hljómsveit kvöldsins skipa:
Lára Rúnarsdóttir — gítar, harmonium og hljómborð
Arnar Gíslason — slagverk
Guðni Finnsson — bassi
Þorbjörn Sigurðsson — hljómborð
Birkir Rafn Gíslason — gítar

