© 2026 Tix Miðasala
Leikfélag Kópavogs
•
14. apríl
Miðaverð frá
1.000 kr.




Stuttverkasýningin Ussshhhh!!
Verður sýnd í leikhúsi Leikfélags Kópavogs, Funalind 2, þriðjudaginn 14. apríl, kl. 20.
Áhorfendur fá að kíkja inn í ólíka heima þar sem allt getur gerst — frá hversdagslegum aðstæðum sem fara örlítið úr skorðum yfir í hið óvænta, fyndna og jafnvel pínu absúrd.
Persónur takast á við lífið, tilveruna og hver aðra á skemmtilegan og stundum ófyrirsjáanlegan hátt.
Verkin eru fjölbreytt og lifandi, skrifuð af höfundum í Leikritasmiðju LK sem hittast reglulega og þróa hugmyndir sínar saman.
Létt, skemmtileg og fersk kvöldstund í leikhúsinu, tilvalið að kíkja og sjá hvað kraumar í nýjum röddum.
Ussssshhhhh!
Stuttverkadagskrá Leikfélags Kópavogs
14. apríl 2026
Fyrsti apríll
Höfundur: Ólafur Þórðarson
Leikstjóri: Ingveldur Lára Þórðardóttir
Leikarar: Gunnur Martinsdóttir Schlüter, Aðalsteinn Jóhannsson og Stefán H. Jóhannesson
Kallaðu mig Kreisí
Höfundur: Steinunn Þorsteinsdóttir
Leikstjórar: Sigrún Tryggvadóttir, Ólafur Þórðarson og Ingveldur Lára Þórðardóttir
Leikarar: Birta Rut Tiasha Sigfúsdóttir, Bryndís Ýrr Ingvarsdóttir og Lilja Sigurðardóttir
Upptekinn
Höfundur: Ingveldur Lára Þórðardóttir
Leikstjóri: Bjarklind Þór
Leikarar: Davíð Máni Stefánsson og Ellen Dögg Sigurjónsdóttir
Apríl fífl
Höfundur: Gísli Björn Heimisson
Leikstjóri: Ólafur Þórðarson
Leikarar: Aðalsteinn Jóhannsson, Gunnhildur Gísladóttir og Guðný Hrönn Sigmundsdóttir
Sjötíu og fimm kassar og húfur
Höfundur: Aðalsteinn Jóhannsson
Leikstjóri: Oddfreyja H Oddfreysdóttir
Leikarar: Gísli Björn Heimisson og Sigurbjörg Halldórsdóttir
Afmæli
Höfundur: Sigrún Tryggvadóttir
Leikstjóri: Gísli Björn Heimisson
Leikarar: Oddfreyja H. Oddfreysdóttir, Ingveldur Lára Þórðardóttir og Birgitta Björk Bergsdóttir
Það læðist að mér grunur
Höfundur: Oddfreyja H Oddfreysdóttir
Leikstjóri: Sigrún Tryggvadóttir
Leikarar: Anna Margrét Pálsdóttir, Bjarklind Þór og Þórdís Sigurgeirsdóttir

