© 2026 Tix Miðasala
Hilton Reykjavík Nordica
•
27. maí
Miðaverð frá
24.900 kr.




Hugsaðu stórt
3 klst. umbreytandi vinnustofa fyrir sérfræðinga, stjórnendur, frumkvöðla og aðra sem vilja læra að hugsa stórt og ná auknum árangri.
Hvað ef stærsta hindrunin sem stendur á milli þín og þess árangurs sem þú ert fær um að ná ... er þitt eigið hugarfar, að hugsa of smátt?
Þessi öfluga þriggja klukkustunda vinnustofa er hönnuð fyrir sérfræðinga, leiðtoga, frumkvöðla og öll þau sem eru tilbúin að byrja að hugsa stórt. Hvort sem þú ert að reka fyrirtæki, leiða teymi eða byggja upp þinn feril - þá ræður hugarfar þitt öllu.
Í heimi sem verðlaunar fyrir að gera stöðugt meira munum við skora á þig að endurhugsa þína nálgun algjörlega. Því 10-földun á vexti eða árangri snýst ekki um að vinna eða gera 10x meira. Það snýst um að gera grundvallarbreytingu á því hvernig þú sérð þig, markmið þín og hvað þér er raunverulega mögulegt.
Þessi vinnustofa sameinar öflugustu hugmyndir frá leiðandi hugsuðum heimsins um hugarfar, frammistöðu og veldisvöxt – settar saman í markvissa, orkumikla upplifun sem mun breyta því hvernig þú sérð þig strax að lokinni vinnustofunni.
Markmið og það sem þú færð út úr vinnustofunni:
✦ Stærri sýn - Þú munt losna við takmarkandi hugsanir og læra hvernig þú átt að setja þér markmið sem vekja raunverulega áhuga þinn og efla hugarfar þitt.
✦ 10x hugarfarið - Skilja hvers vegna oft er auðveldara að ná metnaðarfullum markmiðum en smærri markmiðum, og hvernig þú getur nýtt þér þann skilning til aukins árangurs.
✦ Skýrleiki frekar en annríki - Uppgötvaðu hvernig þú getur borið kennsl á þau fáu atriði sem raunverulega auka mælanlegan árangur þinn, og hætta öðrum, af fullu öryggi.
✦ Krafturinn í Hver, ekki Hvernig – Lærið að hætta að gera allt sjálf og byrjið að vinna með fólki sem eykur sameiginlegan árangur.
✦ Tafarlaus, framkvæmanleg skref – Að lokinni vinnustofunni ferð þú heim með öflug verkfæri sem þú getur strax byrjað að nota, ekki bara innblástur.
>Innifalið í verðinu er bókin „Think bigger: Unlocking the power of 10x in business“ eftir Sverri Ragnarsson.
>Allir þátttakendur fá sent viðurkenningarskjal fyrir þátttöku.
>Eftir viðburðinn fá þátttakendur senda vinnubók til að vinna áfram í efninu eftir viðburðinn.
>Minnum á fræðslusjóði stéttarfélaganna

