© 2026 Tix Miðasala

Dansverkstæðið
•
22. apríl
Miðaverð frá
2.900 kr.




Konukroppar
Konukroppar! Sýningin þar sem sambandið milli kropps og vatns er rannsakað í seyðandi verki sem liggur á mörkum dans- og sviðslistar.
Verkið var upphaflega samið fyrir sundlaug en er núna sýnt a Dansverkstæðinu á þurru landi.
Hver er munurinn á fáklæddum líkama og fullklæddum líkama? Hver er munurinn á hreyfingum í vatni og upp úr vatni? Verkið er óður til líkamans, í öllu sínu veldi; fellingar, hrukkur, appelsínuhúð, gæsahúð, skvabb, mjúkar línur, beinaber svæði
Í sundi. Kaltkaltkaltkaltkalt.
HRISTA HÚÐ
HRISTA MJAÐMIR
HRISTA BRJÓST
Ég hleyp á sleipum sundlaugarbakkanum. Bannað að hlaupa. Gæsahúð. Hvaðan kom öll þessi möl? Ég held um magann/brjóstin, get ekki beðið eftir að komast ofan í 39° heitt vatnið. Ahhh sleppi takinu á magavöðvunum og anda léttar. Ég er hólpin...
-nei hæ, þú hér?
Leikkonurnar, dansararnir og söngkonurnar Snædís Lilja Ingadóttir og Sigríður Ásta Olgeirsdóttir mynda sviðslistahópinn Gleym-mér-ei. Þær elska að vinna í stóru stúdíói þar sem þær geta dansað og hlaupið út um allt. Þær vinna mikið með spuna, fylgja innsæinu og elta flæðið í sköpunarferlinu. Í lok vikunnar er svo algjört möst að skála í góðu freyðivíni og gera upp vikuna.
Konukroppar er þeirra fyrsta verk en alls ekki það síðasta!
Höfundar og flytjendur: Snædís Lilja Ingadóttir, Sigríður Ásta Olgeirsdóttir
Kvennakór: TBA

