Dægurflugur 26: Allt er þegar þrennt er

Bíó Paradís

18. apríl

Miðaverð frá

3.800 kr.

Dægurflugur 26: Allt er þegar þrennt er

Dægurflugur er norskt-íslenskt samstarfsverkefni sem gengur út á það að koma ólíku listafólki saman til að skapa sýningar á sólarhring. Þetta er í þriðja sinn sem verkefnið er haldið á Íslandi.


Í ár munu um 30 ungir listamenn koma saman og búa til leiksýningu í þremur hlutum á sólarhring sem verður sýnd í Bíó Paradís. Leiksýningin verður gerð frá A til Ö á þessum 24 tímum;handrit, hljóðmynd, leikmynd, búningar, æfingar og sýning sem gerir verkefnið einstakt.


Eftir sýninguna verður fagnað saman á Regnboganum, nýjum kokteilabar, í Bíó Paradís þar sem DJ úr hópnum þeytir skífum.


Allir þátttakendur verkefnisins vinna í sjálfboðavinnu og markmið verkefnisins er að stuðla að samfélagshugsun og samvinnu í menningarlífinu.


Norski sjálfboðaliðahópurinn Døgnfluer var stofnaður árið 2014 og hefur síðan þá komið fólki saman sem deilir ástríðu á menningu til að skapa saman tónleika, kvikmyndir, danssýningar, leiksýningar, list, grín og söngleiki. Allt gert á 24 klukkustundum.


Listrænir stjórnendur Dægurflugna eru Hákon Örn Helgason, Júlía Kolbrún Sigurðardóttir og Katrín Guðbjartsdóttir


Það er 12 ára aldurstakmark á þennan viðburð

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger