© 2026 Tix Miðasala
Fantasía – Vinnustofa Kjarvals
•
2. maí
Sala hefst
31. mars 2026, 10:00
(eftir 18 klukkustundir)




Elín Hall – Vortónleikar á Fantasíu
Eftir glæsta upphitun fyrir Laufey kynnir Elín Hall einstaka vortónleika á Fantasíu við Austurvöll laugardaginn 2. maí kl. 21:00. Með sínum einkennandi draumkennda hljóðheimi og hárbeittu textum flytur hún lög af verðlaunaplötunni heyrist í mér? ásamt nýju, óútgefnu efni sem hún hefur tekið upp í London.
Elín Hall hefur skapað sér einstakan sess í íslenskri menningu sem margverðlaunuð tónlistar- og leikkona. Hún hefur náð fjórum lögum í efsta sæti vinsældarlista Rásar 2, spilað á hátíðum eins og Tónaflóði Menningarnætur, Listagili Akureyrarvöku, Bræðslunni, Iceland Airwaves, Eurosonic í Hollandi og BludFest í Bretlandi. Sem leikkona vakti hún heimsathygli fyrir kvikmyndina When the Light Breaks, sýnd á Cannes, og hlaut bæði Edduna og verðlaun fyrir besta leikkonu í aðalhlutverki á kvikmyndahátíðinni í Chicago.
Þetta verður einstakt kvöld í hjarta miðbæjarins, þar sem áhrifamikill tónleikaflutningur mætir glæsilegu umhverfi.
🎟 Takmarkaður miðafjöldi

