© 2026 Tix Miðasala

Hannesarholt
•
15. - 16. maí
Miðaverð frá
5.900 kr.




Leikgerð Jóns Hjartarsonar á Sálminum um blómið eftir Þórberg Þórðarson verður sýnd í Hannesarholt dagana 15. og 16. maí.
Sýningin hefur hlotið frábærar viðtökur á Sögulofti Landnámsseturs í vetur og flytur nú í bæinn.
Verkið markar tímamót á ritferli Þórbergs og er ein af hans ástsælustu bókum. Sagan um rithöfundinn sem stígur inn í hugarheim barns að uppgötva veröldina og verður um leið bernskur. Hann reynir, oft með kostulegum tilburðum, að fylgja þeirri þroskasögu.
Jón Hjartarson, sem sló í gegn á sínum tíma með túlkun sinni á Þórbergi í Ofvitanum í Borgarleikhúsinu, tekst nú á við skáldið tæpum fimmtíu árum síðar
„Jón er hann sjálfur sem sögumaður í sýningunni en bregður á leik um leið og aðrir taka til máls. Með einföldum hreyfingum, svipbrigðum og fasi verður hann aðalpersónurnar hver á fætur annarri, Lilla Hegga, Sobeggi afi og Mammagagga. Með þessu varð frásögnin lifandi og skýr og textinn naut sín alveg í botn. Yfirfullt Söguloftið endurómaði aftur og aftur af skellihlátri – ég held að ég hafi aldrei hlegið eins mikið á sýningu á þeim stað og hafa þær þó margar verið skemmtilegar.“
— Silja Aðalsteinsdóttir (TMM)
„ Töfrakarlinn talar“
„Öllu þessu miðlar Jón ákaflega fallega. “
„Sobbeggi, Lillahegga og Mammagagga, að ógleymdum sjálfum Guði almáttugum, eru mætt á Söguloftið í líki Jóns Hjartarsonar”. Eða eiginlega öfugt. Og bæði. Það eru töfrarnir.
— Þorgeir Tryggvason (mbl)

