viibra: Venutian Wetland

Listahátíð í Reykjavík

8. júní

Miðaverð frá

5.900 kr.

Í sviðsetta tónverkinu Venutian Wetland birtist flautuseptettinn sem sjálfskipuð heild samlifandi lífvera, bundin sífelldri umbreytingu í framandi umhverfi utan jarðneskra marka. Ósýnileg efnasamskipti flæða á milli þeirra, móta tilvist þeirra og skapa stöðuga umbreytingu forms, virkni og sameiginlegrar veru.

Venutian Wetlands er nýtt verk sem samið er sérstaklega fyrir viibru af Bergrúnu Snæbjörnsdóttur við sviðshreyfingar Margrétar Bjarnadóttur.

viibrur skipa Áshildur Haraldsdóttir, Berglind María Tómasdóttir, Björg Brjánsdóttir, Dagný Marinósdóttir, Sólveig Magnúsdóttir, Steinunn Vala Pálsdóttir og Þuríður Jónsdóttir.

Verkið tekur um klukkustund í flutningi og er án hlés.

Tónleikar viibru, Venutian Wetlands eru á dagskrá Listahátíðar í Reykjavík.

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger