© 2026 Tix Miðasala
Fantasía – Vinnustofa Kjarvals
•
1. maí
Miðaverð frá
6.990 kr.




Krummi og Pétur Ben á FANTASÍU
Í hlýju rými þar sem tíminn hægir á sér og hljóðin fá að anda, mætast tvær raddir sem kunna að segja sögur af einlægni og dýpt.
Krummi Björgvinsson og Pétur Ben stíga saman á svið á einstökum tónleikum þar sem nándin ræður ríkjum og hver tónn fær að lifa til fulls. Þeir eru báðir þekkt söngvaskáld, listamenn sem hafa á undanförnum misserum sent frá sér nýtt efni sem hefur snert strengi í hjörtum hlustenda og vakið verðskuldaða athygli.
Þetta kvöld verður ekki aðeins tónleikar heldur einnig falleg augnablik og samvera. Lítill heimur þar sem orð, hljómur og þögn fléttast saman í eitthvað sem ekki verður endurtekið.
Tónleikarnir fara fram 1. Maí á tónleikastaðnum Fantasíu á vinnustofu Kjarvals Austurstræti 10. Miðaverð er 6990 kr og fást á Tix.is.
Krummi, er íslenskur söng og lagahöfundur sem er með rætur í íslenskri og alþjóðlegri tónlistarhefð og hefur samfellt verið að þróa sinn einstaka stíl sem sameinar norræna melankólíu og klassískan alt-country hljóm. Nýja lagið hans „Smile Till it Ends“ sem nýverið kom út markar skýrt næsta skref í hans listrænu vegferð og gefur tóninn fyrir þá plötu sem væntanleg er síðar á árinu. Krummi kemur fram með útbreidda vængi, nakinn og berskjaldaður eins og hann er, án varna, þar sem tónlistin fær að tala fyrir allt sem orð ná ekki utan um.
Pétur Ben er tónlistarmaður þekktur fyrir að blanda saman indie, folk og rokki með persónulegu ívafi. Nýverið gaf Pétur frá sér plötuna Painted Blue sem var tilnefnd sem plata ársins á Íslensku tónlistarverðlaununum 2026. Pétur er þekktur fyrir ófyrirsjáanlegar og fjölbreyttar tónleikaupplifanir þar sem hann fléttar saman eigin ólíkum lagasmíðum við óvæntar og skemmtilegar ábreiður.
Komdu og leyfðu tónlistinni að finna þig í myrkrinu milli laga, í ljósi strengjanna og í hjartslætti kvöldsins sem lifir aðeins einu sinni.

