© 2026 Tix Miðasala
Fríkirkjan í Reykjavík
•
10. september
Sala hefst
20. mars 2026, 10:00
(eftir 20 klukkustundir)




Joep Beving - Liminal tour
Hollenski píanóleikarinn og tónskáldið Joep Beving flytur verk af nýrri plötu sinni ásamt völdum verkum úr fyrri útgáfum.
Á undanförnum árum hefur Beving fest sig í sessi sem einn af þekktari píanóleikurum samtímans og hefur tónlist hans verið streymt í hundruðum milljóna.
Tónlist Bevings hefur heillað hlustendur um allan heim og minnir nær á sameiginlega hugleiðslu. Einfaldar en dýpri laglínur opna rými fyrir kyrrð og leiða okkur aftur að því sem raunverulega skiptir máli: tilfinningum, minningum og mannlegum tengslum.
Píanóið hefur fylgt Beving alla ævi og er þessi djúpa tenging við hljóðfærið greinileg í verkum hans. Frumraun hans, Solipsism, sem upphaflega var hugsuð fyrir fjölskyldu og vini, varð að óvæntu fyrirbæri og markaði upphaf alþjóðlegs ferils hans. Í kjölfarið samdi hann við hið virta útgáfufyrirtæki Deutsche Grammophon og tónlist hans hefur síðan náð til milljóna hlustenda um allan heim.
Á þessum tónleikum í fríkirkju Reykjavíkur fær tónlist Joep að njóta sín í nánu og einstöku andrúmslofti þar sem tónarnir fá að anda og áheyrendur upplifa hana í allri sinni kyrrð og nánd.
Tónleikarnir eru partur af röð tónleika 2026 víðsvegar um heiminn.
Sérstakur gestur Sóley (Sóley Stefánsdóttir)

