Teiknimyndatónleikar Lúðrasveitar Þorlákshafnar

Fjölbrautaskóli Suðurlands Á Selfossi

10. maí

Miðaverð frá

2.000 kr.

Lúðrasveit Þorlákshafnar býður í sannkallaða fjölskylduveislu 10. maí klukkan 16:00 þegar sveitin heldur glæsilega teiknimyndatónleika í sal Fjölbrautaskóla Suðurland á Selfossi.

Á efnisskránni verða lög úr vinsælum teiknimyndum sem flestir þekkja og elska – tónlist sem fær bæði börn og fullorðna til að brosa, syngja með og rifja upp góðar minningar.

Til að gera upplifunina enn skemmtilegri mun Leikhópurinn Lotta bregða á leik á milli atriða með fjörugum og fyndnum kynningum eins og þeim einum er lagið.

Nemendur úr Tónlistarskóla Árnesinga munu einnig spila með í nokkrum lögum en með þessum tónleikum vonast Lúðrasveitin til þess að vekja áhuga ungra einstaklinga á blásturshljóðfærum og námi á þeim hljóðfærum.

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger