© 2026 Tix Miðasala
Austurbæjarbíó
•
5. júní
Sala hefst
26. mars 2026, 12:00
(eftir 1 viku)




Fischersund og Listahátíð í Reykjavík kynna fyrstuilmtónleika á Íslandi með Jónsa, Kjartani Holm og SinFang.
Rétt eins og tónlist byggir ilmgerð á samspili ólíkra tóna. Allt frá efstu tónunum til þeirra dýpstu, frá ferskum yfirí höfga, frá hverfulum yfir í langlífa. Þótt ilmgerð hafiverið í forgrunni hjá Fishersundi snýst hugmyndafræði þeirra um að skapa heildstæðan heim þar sem flest skilningarvit gesta eru virkjuð í gegnum lykt, hljóð og sjón. Ilmtónleikar Fischersunds eru einstök upplifun þar sem ilmur, tónlist og myndlist renna saman í sannkallað skynjunar ferðalag sem kitlar nef, eyru og augu áhorfenda. Tónlistarmennirnir Jónsi úr SigurRós, Sin Fang og Kjartan Holm flytja tónverk sín sem endurspegla óefnislegan ilm Fischersunds, Ingibjörg Birgisdóttir vinnur myndbandsverk fyrir tónleikana ogLilja Birgisdóttir leiðir okkur í gegnum ævintýrið.

