© 2026 Tix Miðasala
Rannsóknarsetur Santé, Skeifunni 8
•
22. apríl
Miðaverð frá
9.900 kr.




López de Heredia
López de Heredia, eitt elsta vínhús Rioja, var stofnað árið 1877 og er enn í eigu sömu fjölskyldu.
Í yfir hundrað og fjörutíu ár hefur húsið viðhaldið sínum gildum um hefð, þolinmæði og gæði —
Vínin þeirra, á borð við Viña Tondonia og Viña Bosconia, hafa öðlast sess meðal klassískra vína
á heimsvísu.
Santé og Ber ehf verða með vínsmakk miðvikudaginn 22. apríl í Rannsóknarsetri Santé þar sem
við förum í gegnum sögu hússins og smökkum úrval af vínum López de Heredia. Á kvöld
stundinni verður farið yfir hvað einkennir víngerð þeirra og hver sérstaða þeirra er — sér í lagi
þá löngu þroskun á tunnum og flöskum sem gefur vínunum sinn karakter.
Þetta er kvöldstund fyrir þá sem vilja kynnast betur einu mest virta vínhúsi Spánar og skilja betur
hvað liggur að baki.

