Google ads - Grunnnámskeið

Digido, Borgartún 29

6. maí

Miðaverð frá

59.900 kr.

Google ads - Grunnnámskeið

6. og 7. maí 2025

Fyrir hverja?

Námskeiðið er tilvalið fyrir markaðsfólk, vefstjóra, fyrirtækjaeigendur, frumkvöðla og alla þá sem vilja taka sín fyrstu skref með Google Ads. Á námskeiðinu munu nemendur öðlast færni í Google Ads og geta sett upp ólíkar en árangursríkar herferðir.

Á námskeiðinu munu þátttakendur læra

  • Hvernig uppboðskerfið virkar

  • Uppsetningu, strúktúr og rekstur herferða í kostaðri leit, Google Display og YouTube

  • Að velja leitarorð og setja upp árangursríkar auglýsingar í kostuðu leitinni

  • Að meta árangur herferða

  • Að velja leitarorð og setja upp árangursríkar auglýsingar í kostuðu leitinni

  • Miðunarmöguleika (e. targeting) á Google Display netinu og YouTube

Um kennara

Birkir Árnason hefur víðtæka reynslu af markaðsmálum með sérstaka áherslu á umsjón og bestun auglýsingaherferða á kerfum á borð við Meta og Google, ásamt mikilli þekkingu á vefgreiningu og uppsetningu mælitækja til að tryggja nákvæma gagnasöfnun. Hann hefur aðstoðað fyrirtæki eins og Perluna, Icelandair, Lauf og Domino's að ná framúrskarandi árangri í markaðsmálum. Elísa starfaði sem viðskiptastjóri hjá Google þar sem hún starfaði með íslenskum og dönskum auglýsendum við að hámarka árangur í Google Ads. Elísa hefur því afar djúpa og verðmæta þekkingu á auglýsingakerfinu sem hún mun deila með þátttakendum.

Aðrar upplýsingar

Digido teymið hefur haldið yfir 100 námskeið í markaðssetningu. Námskeiðið er tveir dagar en kennt er í þrjá tíma í senn. Stéttarfélög veita allt að 90% styrk af námskeiðisgjaldi.

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger