Ólgar blóð og vaknar þrá - vortónleikar Spectrum

Hjallakirkja

22. apríl

Miðaverð frá

1.200 kr.

Ólgar blóð og vaknar þrá - vortónleikar Spectrum

Ástin, vonin, trúin, stórfengleiki og miskunnarleysi náttúrunnar, reiði og eyðilegging, frelsun og fyrirgefning – þetta er á meðal yrkisefnanna í verkunum sem verða flutt á vortónleikum Spectrum í Hjallakirkju 22. apríl kl. 20. 

Á efnisskránni eru lög um stórar tilfinningar og lífsins spurningar – úr ólíkum áttum eins og þau eiga að vera hjá Spectrum. Við syngjum á íslensku, ensku, írsku, sænsku, latínu og færeysku og lögin eru blanda af þjóðlögum, nútímatónlist, djass, rokki og poppi. Eitthvað við allra hæfi. 

Miðaverð er 4.900 krónur, en 1.200 kr. fyrir börn 12 ára og yngri. Miðar fást á tix.is. Hafið samband við kórfélaga til að fá afsláttarkóða.

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger