© 2026 Tix Miðasala
Bíóhöllin Akranesi
•
10. - 11. apríl
Miðaverð frá
9.500 kr.




Skagarokk snýr aftur!
Dagana 10. og 11. apríl nk. ætla 6 frábærar hljómsveitir að spila í Bíóhöllinni á Akranesi undir nafninu Skagarokk 2026.
Föstudagskvöldið verður spilað þungarokk:
Black Sabbath rokkmessa
Múr
Bastarður
Laugardagskvöldið er það önnur músík og örlítið léttari:
Hjálmar
Spacestation
Oyama
Akranes var oft kallað Skipaskagi á árum áður þegar Akranes var útgerðarbær og þaðan kemur Skaginn í Skagarokk.
Skagarokk er mini-festival!
Skagarokk var fyrst haldið í Bíóhöllinni á Akranesi árið 1989 og svo aftur 1990. Þar komu mestmegnis fram hljómsveitir frá Akranesi en tónlistarlífið á Akranesi þá var mjög blómlegt.
Siggi Sverris sem hafði verið með þungarokksþáttinn Bárujárn á Rás 2 og var ritstjóri Skagablaðsins var svo maðurinn á bakvið Skagarokk þegar það var stærst.
Hann hugsaði stórt og ákvað að gera alvöru Skagarokk í íþróttahúsinu á Akranesi í lok september 1992 og fékk hvorki meira né minna en Jethro Tull og Black Sabbath til að koma og spila á Akranesi. Já þetta er satt – það gerðist!
Jethro Tull spilaði fyrir 1500 manns c.a. á föstudagskvöldi og Black Sabbath fyrir 300 manns í íþróttahúsinu á Akranesi. Sveitin var þá nýkomin frá Suður Ameríku þar sem hún spilaði á stórum íþróttaleikvöngum fyrir tugi þúsunda.
Það var gríðarlegt tap af þessu tónleikahaldi og Siggi ákvað að segja þetta gott af Skagarokki.
En árið eftir var haldið Skagarokk aftur í Bíóhöllinni á Akranesi. Að því stóðu Bjarki Kaikumo söngvari hljómsveitarinnar Lipstick Lovers og Skagamaðurinn Ólafur Páll Gunnarsson sem starfaði þá sem hljóðmaður á Ríkisútvarpinu.
Á Skagarokki 1993 og 1994 spiluðu hljómsveitir og listamenn eins og Bubbi Morthens – Jet Black Joe – Olympia, Lipstick Lovers, Stripshow, Kombóið, Silfurtónar ofl.
Síðan eru liðin mörg ár og komið að fyrsta Skagarokkinu í 32 ár og nú er það ekki eitt kvöld heldur tvö – Festival í anda Skagarokks 92.

