Skandinavískt Viskí

Dillon

18. apríl

Miðaverð frá

14.990 kr.

Komdu í bragðferð um Norðurlöndin þar sem við kynnumst skandinavískum viskíum sem hefur undanfarið vakið verðskuldaða athygli. Á námskeiðinu smökkum við vandlega valin viskí frá frændum okkar í Skandinavíu og förum um leið yfir hráefni, aðferðir og það sem gerir norrænt viskí einstakt.

Hentar jafnt fyrir þá sem eru að taka sín fyrstu skref í vískí jafnt sem þá sem lengra eru komnir.

Smakkað verður á a.m.k. 5–6 mismunandi tegundum.

Námskeiðið tekur um 2 tíma.

Um leiðbeinandann

Þorfinnur Guttormsson heiti ég og ætli það sé ekki best að titla mig sprúttsala.

Áhugi minn fyrir brenndum vínum vaknaði snemma og hefur í raun verið leiðandi afl allan minn starfsferil.

Ég er nú að sjá síþyrstum Dönum fyrir drykkjum frá brugghúsinu margfræga Mikkeller. Þar áður vann ég hjá Foss distillery og Glóbus, auk þess að hafa staðið ófáa vaktina á bak við barinn á sjálfum Dillon.

Upphaflega settum við Viskískólann á Dillon upp sem starfsmannaþjálfun. Fljótlega fóru að berast fyrirspurnir utan úr bæ, en þá lá það augljóslega við að hleypa fróðleiksfúsum að.

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger