WACKEN METAL BATTLE

IÐNÓ

25. apríl

Miðaverð frá

3.500 kr.

WACKEN METAL BATTLE

Hljómsveitakeppnin Wacken Metal Battle verður haldin 25. apríl á hinum legendary tónleikastað Iðnó í Reykjavík.

Headliner kvöldsins: MÚR!

Í ár keppa 7 sveitir í úrslitum og mun fjölskipuð alþjóðleg dómnefnd ásamt áhorfendum velja eina af þeim til þess að spila fyrir Íslands hönd á stærstu þungarokkshátíð heims Wacken Open Air í sumar. Þar spilar hún fyrir mörg þúsund manns og tekur þar með þátt í lokakeppni Wacken Metal Battle ásamt 30 öðrum þjóðum þar sem ansi rausnarleg verðlaun bíða efstu 5 sveitanna.

Sérstakir gestir verða hljómsveitirnar Múr og Gaddavír.

Það er 18 ára aldurstakmark á þennan viðburð.

Múr hefur verið gjörsamlega að springa út síðustu misseri sem frábært tónleikaband. Frammistaða þeirra á Andkristni í desember í fyrra er enn umtöluð enda voru þeir líklega besta bandið á hátíðinni. Nýja efnið frá þeim er algjörlega stórbrotið. Hljómsveitin vann þessa keppni fyrir nákvæmlega 4 árum síðan og hafa gert víðreist síðan eftir að þeir skrifuðu undir útgáfusamning við einn af risunum í bransanum Century Media og gáfu út fyrstu plötu sína hjá þeim í nóvember 2024. Hljómsveitin er ein af 4 íslenskum sveitum sem spila á Inferno hátíðinni í Osló núna um páskana en sveitin spilaði í janúar á Eurosonic í Hollandi, og í fyrra hitaðu þeir upp (direct support) fyrir Dark Tranquallity á Svíatúr, spiluðu á Sweden Rock Festival, Summer Breeze í Þýskalandi og Incineration fest í Bretlandi svo eitthvað sé nefnt. Tónleikasumarið 2026 er svo bjart þar sem búið er að tilkynna bandið á Sátuna og nýja In Flames festivalið í Svíþjóð, Göteborg Brinner, ásamt ArcTanGent í Bretlandi, Motocultor í Frakklandi og Karmøygeddon í Noregi.

Gaddavír sigraði í WMB Iceland keppninni í Iðnó í fyrra og spiluðu því á Wacken hátíðinni í síðasta sumar þar sem þeir gerðu ansi gott mót. Andi Skagamanna (og fáni auðvitað) reið vel yfir vötnum á sviðinu. Sveitin hefur nýtt tímann vel eftir þetta og spilað mikið. Sveitin spilaði á Sátunni í fyrra, annað árið í röð og gerðu víðreist á Norðanpönk, strax eftir Wacken. Þeir spiluðu á Hellirinn Metalfest 5 og hituðu svo upp fyrir Skálmöld í Gamla Bíó svo eitthvað sé nefnt. Sveitin fylgir einnig Múr á Inferno hátíðina um páskana, þar sem bæði Auðn (2016 WMB sigurvegararnir) og Forsmán (WMB finalists 2022) koma einnig fram. Gaddavír gefa út aðra plötu sína Akranes Krú 27. mars n.k. á Reykjavík Record Shop.

Húsið opnar kl. 18.30 og stíga Gaddavír á svið 19:00 og opna kvöldið með sprengju.

Þátttökusveitirnar í sjálfri WMB keppninni í ár verða kynntar innan tíðar en fjölskipuð alþjóðleg dómnefnd fer yfir umsóknirnar og velur þær sveitir sem munu koma fram live í keppninni.

Á keppninni hafa áhorfendur einnig atkvæðisrétt þannig að það er um að gera að mæta snemma og styðja sína sveit en atkvæðaseðlar verða afhentir við inngang.

Nánari upplýsingar á www.facebook.com/wmbiceland.Official og www.instagram.com/wmbiceland.Official/

Athugið að það er takmarkað magn miða á þennan viðburð og miðarnir munu fara hratt.

Styrktaraðilar keppninnar eru: Dordingull, Rás 2 og Ægir Brugghús, en einnig Hljóðfærahúsið, Tónastöðin, Stúdíó Helvíti, Sundlaugin studíó og Xprent sem gefa vinninga í keppninni.

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger