© 2026 Tix Miðasala
Vagninn, Flateyri
•
5. apríl
Miðaverð frá
5.000 kr.




Bergur Ebbi - Uppistand á Vagninum
Bergur Ebbi mun kæta Vestfirðinga og gesti þeirra um páskahelgina þegar hann kemur fram á Vagninum á Flateyri. Uppistandskvöld á Vagninum eru þegar orðin að goðsagnakenndum viðburðum og hafa Saga Garðars, Ari Eldjárn, Sóli Hólm, Dóri DNA að ónefndum Bergi Ebba mætt og troðfyllt kofann á frábærlega vel heppnuðum kvöldum undanfarin ár.
Uppistand Bergs Ebba er að miklu leyti byggt á sýningu hans Hagsmunum sem sló öll met í Tjarnarbíó í fyrra og var sótt af yfir fimm þúsund gestum. Uppistandið fjallar um samtímann og samskiptamynstur hans, hvernig við tölum saman, hvernig við hugsum um framtíðina og ekki síst um alla hlýlegu hversdagslegu hlutina sem skipta í raun mestu máli þegar upp er staðið.

