Geimsteinn 50 ára - Sóli Hólm minnist Gylfa Ægis.

Geimsteinn

26. mars

Sala hefst

10. mars 2026, 10:00

(eftir 20 klukkustundir)

Nú er hálf öld liðin frá því að Rúnar Júlíusson stofnaði hljómplötuútgáfuna Geimstein. Af því tilefni ætla synir hans að taka fyrir þá tónlistarmenn sem komu við sögu á vettvangi útgáfunnar.

Í þessari umferð mun Sóli Hólm verða bræðrunum til fulltingis í að minnast Gylfa Ægissonar sem kom þó nokkuð við sögu Geimsteins með hinum þekktu söngævintýrum og sem skipstjórinn á Áhöfninni á Halastjörnunni.

Farið verður yfir margar fleygar sögur og mörg af þekktustu lögum Gylfa verða flutt að hætti hússins.

Ótrúlega skemmtilega stund um einn af skrautlegri litunum í litakassa íslenskrar tónlistarsögu.

Viðburðurinn er styrktur af Uppbyggingarsjóði Suðurnesja.

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger