Bryn Terfel

Harpa

10. október

Miðaverð frá

6.990 kr.

Sir Bryn Tefel, sem er álitinn besti bassa-baritón heims, heldur áfram að koma fram í frægustu óperuhúsum og tónlistarhöllum um heiminn. Nú kemur hann í Hörpu eina kvöldstund þar sem áheyrendum gefst kostur á að njóta einstakra hæfileika hans. Bryn er þekktur um heim allan fyrir kraftmikla söngrödd sína og magnaða nærveru og er sannarlega meistari á sínu sviði.  

Þessir einsöngstónleikar eru fágætt tækifæri til að heyra Bryn syngja í návígi og flytja tónlist sem er honum afar hugleikin. Frá velskum þjóðlögum sem enduróma frá heimahögum hans, til frægra laga úr söngleikjum, lieder og óperum, mun mögnuð rödd hans mun fylla Eldborgarsalinn og skína skært Með Bryn á sviðinu verður píanóleikarinn þekkti Annabel Thwaite, og hörpuleikarinn Hannah Stone, sem er eiginkona hans og samstarfsaðili til fjölda ára. Hún var m.a. einka-hörpuleikari Karls Bretakonungs í fjögur ár. Saman hverfa þau aftur til upprunans og þess sem mestu máli skiptir: fagurrar tónlistar, fluttrar af einlægni og sál.

Það er sjaldgæft að sjá listamann sem er jafnvígur á svo marga ólíka stíl, og enn sjaldgæfara að upplifa það allt á einum tónleikum. Þetta er einstakt tækifæri til að njóta heildarmyndar af Bryn Terfel – sagnamanninum, skemmtikraftinum og einum fremsta óperusöngvara heims í dag.

,,Besti bassa-baritón söngvari heims." Katherine Jenkins, The Sunday Times, UK

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger