© 2026 Tix Miðasala
Harpa
•
3. júní
Sala hefst
6. mars 2026, 10:00
(eftir 16 klukkustundir)




Stefán Ragnar Höskuldsson flautuleikari er í hópi íslensks tónlistarfólks sem náð hefur einstökum árangri í hinum alþjóðlega tónlistarheimi.
Stefán var fyrsti flautuleikari Metropolitan-óperunnar í New York frá 2008 til 2016 og hjá Sinfóníuhljómsveitinni í Chicago frá 2015 til 2025. Síðastliðið haust tók hann við stöðu fyrsta flautuleikara Fílharmóníusveitarinnar í Berlín. Hann kemur einnig reglulega fram sem einleikari og gestakennari víða um heim.
Það er mikið tilhlökkunarefni að Stefán Ragnar komi nú í fyrsta sinn fram á Listahátíð í Reykjavík. Haldnir verða tvennir tónleikar, bæði í Reykjavík og í Eskifjarðarkirkju, á æskuslóðum Stefáns fyrir austan. Hér gefst einstakt tækifæri til þess að hlýða á Stefán Ragnar leika með góðvinum sínum, Sigurgeiri Agnarssyni sellóleikara og Liam Kaplan píanóleikara. Á efnisskránni verða verk eftir tónskáld á borð við Prokofiev, Villa-Lobos og Mendelssohn.
Eldri borgurum og ungmennum undir 25 ára býðst að kaupa miðann með 10% afslætti í miðasölu Hörpu.
Tónleikarnir eru um ein og hálf klukkustund, með hléi.

