10 Ástæður

Gamla Bíó

19. - 29. mars

Miðaverð frá

3.990 kr.

10 Ástæður

Stratford-systurnar þær Kat og Bíanka eru gjörólíkar þar sem Bíanka sækist sífellt í athygli og stráka á meðan Kat er andstæðan við Bíönku. Reglan á þeirra heimili er sú að Bíanka má eignast kærasta ef Kat eignast kærasta, sem virðist að sjálfsögðu ómögulegt. Það var þangað til að hann Kameron byrjaði í skólanum og varð um leið bálskotinn í Bíönku, en hvernig getur Kameron verið með Bíönku ef Kat á ekki kærasta? Kameron og vinur hans Mikki komast fljótt að þeirri niðurstöðu að þeir neyðast til að borga einhverjum til þess að taka Kat á deit, og hver annar er ríkari og heimskari heldur en hann Jói Donner? Jói dílar við Patrek að taka Kat á stefnumót en það þarf aðeins meira en sjarma og flott bros til þess að heilla Kat Stratford.

10 Ástæður er bráðskemmtilegur söngleikur byggður á kvikmyndinni 10 Things I Hate About You sem sló í gegn þegar hún kom út árið 1999 og nýtur enn mikilla vinsælda í dag. Mikill hæfileiki ríkir meðal stjórnenda sýningarinnar en leikstjóri verksins er Þórey Sigþórsdóttir, danshöfundurinn er Lea Alexandra Gunnarsdóttir og tónlistarhöfundurinn er Kristína Jóhannsdóttir. Komdu í Gamla bíó og sjáðu hvernig þessi æsispennandi saga endar, þú vilt ekki missa af þessu!

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger