© 2026 Tix Miðasala
Harpa
•
7. júní
Miðaverð frá
5.900 kr.




Ljóshljóð
Einleikari: Katie Buckley, harpa
Stjórnandi: Richard Schwennicke
Efnisskrá
Aaron Copland (1900-1990): Appalachian Spring svíta (ballett fyrir Mörthu)
Germaine Tailleferre (1892-1983): Konsertínó fyrir hörpu og hljómsveit
Ottorino Respighi (1879-1936): Trittico Botticelliano
Þriðji áratugur síðustu aldar einkenndist af glysi og glamúr. Evrópa var að jafna sig á hörmungum fyrri heimsstyrjaldar. Bandaríkjamenn höfðu bjargað heimsálfu á barmi eyðileggingar og báru í kjölfarið með sér ferskan blæ í tónlistaráhrifum og ný samfélagsviðmið. Á þessum óreiðukenndu og stórbrotnu tímum leituðust þrjú tónskáld við að endurskilgreina sig og finna nýja rödd í tónlistinni. Aaron Copland lærði í París í byrjun áratugarins og ferðaðist aftur til Ameríku, fullur löngunar til að finna nýjan amerískan stíl. Hans stóra tímamótaverk í þessum skilningi var ballettinn Appalachian Spring sem skrifaður var fyrir danshöfundinn Mörthu Graham.
Germaine Tailleferre fór aðra leið yfir Atlantshafið. Hún hafði verið hluti af frumkvöðlahópnum „Les Six“ í París en bandarískur eiginmaður hennar, sem var afar illa við að hún semdi tónlist, tók hana með sér til New York, þar sem hún samdi Konsertínó fyrir hörpu. Í verkinu teflir hún áhrifum franska impressjónismans saman við eigin húmor og glettni.
Ottorino Respighi var tónlistarfræðingur og fjölfræðingur. Hann lærði og kenndi tónlistarsögu, dáði gregórsöngva og gerði tónlist Monteverdi vinsæla á fyrrihluta 20. aldar. Þessara áhrifa gætir greinilega í verkinu „Trittico Botticelliano“, en Respighi endurvinnur þessar laglínur í eins konar framtíðarstíl: „Allt er umbreyting hreyfingar.”
Styrktaraðilar kammersveitarinnar Elju eru Reykjavíkurborg og Tónlistarsjóður. Elja er jafnframt Listhópur Reykjavíkur 2026.
Áætluð lengd tónleika 75 mínútur, án hlés.

