© 2026 Tix Miðasala
Hlaðan, Gufunesbæ
•
10. - 25. mars
Miðaverð frá
3.590 kr.




Blúndur og Blásýra
Leikfélagið Apollo setur upp sýninguna: “Blúndur og Blásýra.” Abbý og Marta eru fjörugar systur á áttræðisaldri. Þegar Mortimer frændi þeirra finnur lík í Gluggabekknum þeirra byrjar gamanið hinsvegar fyrir alvöru.
Blúndur og Blásýra er skrifuð af Joseph Kesselring og var fyrst sýnt árið 1941 á Broadway. Leikritið er stórskemmtileg saga sem hefur verið gerð kvikmynd eftir og sett upp víða við góðar viðtökur.
Í leikritinu fáum við að kynnast systrunum Abbý og Mörtu sem af einskærri góðmennsku sinni eitra fyrir einmanna herramönnum til að lina þjáningar þeirra. Frændi þeirra, leikhúsgagnrýnandinn Mortimer, reynir að bjarga öllu þrátt fyrir stanslausar hindranir. Þegar ástandið virðist ekki geta orðið verra birtist Jónatan frændi þeirra sem er í feluleik frá löggunni með vini sínum Doktor Einstein.
Bráðfyndinn farsi sem er loforð á skemmtilega kvöldstund í Hlöðunni í Gufunesi. Verið velkomin á Brewster heimilið!

