© 2026 Tix Miðasala
Harpa
•
26. mars
Sala hefst
4. mars 2026, 10:00
(eftir 13 klukkustundir)




Íslensku vefverðlaunin fara fram í 25. sinn fimmtudaginn 26. mars 2026 í Silfurbergi í Hörpu. Húsið opnar kl. 18 með fordrykk og dagskrá hefst kl. 19.
Samtökum vefiðnaðarins bárust í ár 220 innsendingar veflausna sem keppa um titla á borð við fyrirtækjavef ársins, söluvef ársins og efnis- og fréttaveitu ársins – en aðeins 16 lausnir hreppa verðlaun.
Það er engin önnur en Birna Rún Eiríksdóttir, leikkona og uppistandari, sem mun halda uppi dúndur stemningu og róa stressaðar taugar á milli þess sem verðlaun verða veitt.
DJ Sunna Ben mun þeyta skífum og sjá til þess að dansgólfið fái jafnvel meiri athygli en verðlaunin sjálf og að þið vaknið öll með harðsperrur.
Öllum miðum fylgir sæti. Að miðakaupum loknum verður hægt að hafa samband beint við SVEF í gegnum svef@svef.is til að kaupa flöskuborð. Athugið að flöskuborð innihalda ekki miða á vefverðlaunin, heldur er nauðsynlegt að kaupa miða fyrst og flöskuborð eru svo valkvæð viðbót.
Flöskuborðin eru tvenns konar:
Premium flöskuborð er mjög vel staðsett í sal, sem næst sviðinu og inniheldur:
- 10x bjóra
- 1x rauðvínsflösku í betri kantinum
- 1x hvítvínsflösku í betri kantinum
- 2x kampavínsflöskur
- Confetti til að sprengja
Verð: 139.000 kr.
Klassískt flöskuborð er vel staðsett, ca fyrir miðju í sal og inniheldur:
- 8x bjóra
- 1x rauðvínsflösku
- 1x hvítvínsflösku
- 2x freyðivínsflöskur
Verð: 89.000 kr.
Tryggðu þér miða á viðburðinn sem má með sanni kalla árlega uppskeruhátíð vefiðnaðarins!

