Ástin ein taugahrúga, enginn dans við Ufsaklett

Tjarnarbíó

•

8. október

Miðaverð frá

5.900 kr.

Ný kammerópera eftir Önnu Halldórsdóttur og Elísabetu Jökuls í uppsetningu leikhópsins Spindrift Theatre.
„Við förum á ball og ég er að hugsa um að bera upp bónorð þegar ég man eftir geðhvörfunum mínum svo það verður ekkert úr því…“Áhorfendum býðst að skyggnast inn í líf konu í Vesturbæ Reykjavíkur. Konu sem þráir fátt meira en að fá að tilheyra. Hvað gerir man ekki til þess að tilheyra? Fá að vera með?Heimili konunnar, sem hingað til hefur verið hennar örugga athvarf, breytist hægt og bítandi í stað þar sem lífi hennar er ógnað og hún þarf að taka erfiðar ákvarðanir til að bjarga sjálfri sér. Verkið er þroskasaga þar sem við fylgjumst með baráttu draumsins við raunveruleikann. Þessi barátta er spegluð í ofbeldisfullu ástarsambandi frá upphafi til enda og við veltum fyrir okkur: hvað er það sem gerir man að “alvöru konu”, hvað er ástin - Og hvar leynist hinn raunverulegi lykill að hamingjunni?Konan er með geðhvörf sem litar frásögnina þannig að úr verður rússibanareið á milli alsælu og dýpsta þunglyndis. En hvort sem konan er stödd á toppnum eða botninum er kímnin aldrei langt undan.„...ég skil ekki af hverju ég gekk ekki út, en kannski vissi ég ekki hvar dyrnar voru “
Aðstandendur:
Flytjandi: Tinna Þorvalds Önnudóttir
Sellóleikari: Júlía Mogensen
Tónskáld og tónlistarstjóri: Anna Halldórsdóttir
Saga og texti: Elísabet Jökulsdóttir
Leikstjórn og leikgerð: Bergdís Júlía Jóhannsdóttir
Ljósahönnun: Juliette Louste
Sviðs- og búningahönnun: Sara Hjördís Blöndal
Dramatúrgar: Anna Halldórsdóttir og Tinna Þorvalds Önnudóttir
Framkvæmdastjóri: Nanna Gunnars

Ljóðabókin Ástin ein taugahrúga, enginn dans við Ufsaklett, vakti sterk viðbrögð þegar hún kom út árið 2015. Þessi ljóð-saga er byggð á ævi Elísabetar líkt og margar af hennar sögum sem einnig hafa ratað á leiksvið hér á landi. Þetta er fyrsta óperan sem samin er við texta Elísabetar - en örugglega ekki sú síðasta.
Verkið var flutt í vinnslu sem tónleikauppfærsla í Mengi á Myrkum músíkdögum og í Norðurljósasal Hörpu á Óperudögum í Reykjavík árið 2023, og er nú flutt sem fullunnið óperuverk í Tjarnarbíói.
“Tónlist Önnu Halldórsdóttur gefur textanum nýja vídd, er bæði grípandi og aðgengileg og höfðar bæði til áhugafólks um óperu en líka þeirra sem hafa lítið eða jafnvel aldrei hlustað á óperu fyrr en nú.”

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger