Tríó Sölva Kolbeins

Iðnó Jazz

8. mars

Miðaverð frá

2.500 kr.

Tríó Sölva Kolbeins

Tríó saxófónleikarans Sölva Kolbeinssonar leikur efni af plötunni Collage sem kom út hjá Reykjavík Record Shop í nóvember 2025. Collage er fyrsta hljómplata Sölva eingöngu með eigin tónsmíðum. Þetta er tilraunakenndur djass, innblásinn af dvöl hans í Berlín og Kaupmannahöfn ásamt því að flytja aftur heim til Íslands. Lögin eru ólík og tákna mismunandi augnablik, myndir, hver og ein með eigin stemningu og sterk karaktereinkenni. Saman skapa myndirnar heild og þaðan kemur titill plötunnar.

Ásamt Sölva koma fram gítarleikarinn Hilmar Jensson og slagverksleikarinn Magnús Trygvason Eliassen. Tríóið varð til út frá dúói Sölva og Magnúsar en þeir voru paraðir saman við Hilmar á Djasshátíð 2020 og spiluðu þar stórskemmtilega tónleika. Til að byrja með spiluðu þeir sín uppáhalds lög eftir aðra en fókusinn færðist fljótlega yfir á tónsmíðar Sölva. Eftir að spila fleiri tónleika og prófa allskonar héldu þeir íí hljóðver desember 2024. Nú er komin plata og meira á leiðinni! Sölvi Kolbeinsson (f. 1996) er saxófónleikari og tónskáld. Hann stundaði klassískt saxófónnám í Tónmenntaskóla Reykjavíkur og Tónlistarskólanum í Reykjavík en rytmískt nám í Tónlistarskóla FÍH og Jazz-Institut Berlin þaðan sem hann lauk BA námi sumarið 2019. Hann er meðlimur í mörgum ólíkum hópum á Íslandi og víðar. Þar má nefna dúó með trommaranum Magnúsi Trygvasyni Eliassen, Mánudjass, Camus quartet, Ari Árelíus, La bomba, Guiding star orchestra, Hamamelidae, Volcano bjorn og Windisch quartet. Sölvi hefur spilað á djasshátíðum í Kanada, Þýskalandi, Finnlandi, Noregi, Danmörku og á Íslandi auk þess að hafa komið fram í fjölda annarra landa.

Sölvi hefur gefið út þrjár plötur eingöngu með eigin tónsmíðum: Collage (2025), Live in Berlin (2022) og August (2021). Hann hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin árið 2016 sem bjartasta vonin í flokknum Djass- og blústónlist. Sölvi kennir á saxófón og klarinett í Skólahljómsveit Grafarvogs og Tónskóla Sigursveins síðan haustið 2023.

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger