© 2026 Tix Miðasala

Sykursalurinn
•
26. mars
Miðaverð frá
1.500 kr.




20 ára afmæli Endósamtakanna
Komdu í afmælispartý
Í tilefni af 20 ára stórafmæli Endósamtakanna blásum við til veislu. Síðustu 20 ár einkennst af eldmóði, samstöðu, baráttu, sigrum og ótal augnablikum sem hafa mótað það sem við stöndum fyrir í dag.
Líf með endómetríósu getur verið flókið og erfitt og réttindabaráttan getur verið þung, en á þessum tímapunkti viljum við gleðjast saman og fagna því hvað endósamfélagið er einstakt.
Afmælispartýið fer fram í Sykursal í Grósku fimmtudaginn 26. Mars, húsið opnar kl. 19:30 og dagskrá hefst kl. 20.
Miðaverð í partýið er:
1500 krónur fyrir meðlimi samtakanna
2900 fyrir aðra
Miðasala fer fram inn á Tix.is
Í miðaverðinu er innifalið
Ljúffengar veitingar og fordrykkur
Glæsilegir gjafapokar
Frábær skemmtiatriði og partýbingó með veglegum vinningum.
Einnig verðum við með túrverkjaherminn vinsæla á staðnum og end-Ó-lukkuhjólið, þar sem frábærir vinningar eru innan um ólukkureiti.
Við hvetjum sérstaklega meðlimi samtakanna til að koma og fagna með okkur en það er velkomið að grípa með vini eða fjölskyldumeðlimi.
Nánari dagskrá verður birt fljótlega, fylgstu með hér: https://fb.me/e/1VA2NtOJAa
Endómars 2026
Þessi viðburður er hluti af 20 ára afmælisdagskrá Endósamtakanna í Endómars.
Endómars er mánuður tileinkaður vitundarvakningu um endómetríósu og í ár miða allir viðburðir að því að stuðla að samtali og samstöðu og síðast en ekki síst, skemmta okkur saman!
Það er 18 ára aldurstakmark á þennan viðburð.

