Óskar Guðjónsson og Move - Múlinn Jazzklúbbur

Harpa

8. apríl

Miðaverð frá

4.900 kr.

Óskar Guðjónsson, saxófónn

Eyþór Gunnarsson, píanó

Valdimar Kolbeinn Sigurjónsson, bassi

Matthías MD Hemstock, trommur

Óskar vildi takast á við sígildasta form jazztónlistar, lúður með píanótríói. Hann stofnaði því kvartettinn MOVE með Eyþóri Gunnarssyni píanóleikara, Valdimar Kolbeini Sigurjónssyni kontrabassaleikara og Matthíasi M.D. Hemstock trommuleikara. Þeir hafa æft vikulega frá árinu 2017 og leita leiða til að nálgast eigið efni með eigin aðferðum og allri þeirri fjölbreytni sem þeir finna upp á. Fjórmenningarnir eru þekktir í íslensku tónlistarlífi og hafa allir skapað sér sérstöðu með persónulegri nálgun á fjölbreyttustu viðfangsefni. Ekki skortir þar áskoranir, meðal annars þá hvort þeirra aðferðir við tónsmíðar og samleik sé lituð af því sem má eða má alls ekki. Hvort réttar skoðanir, samkvæmt þeim reglum og siðvenjum sem gilda til dæmis um íslenska tungu, hafi áhrif á sköpun og túlkun tónlistar. Þeir vilja brjótast úr höftum slíkrar rétthugsunar í tónsmíðum og túlkun, leika lausum hala. Frá unglingsárum hefur Óskar Guðjónsson verið eftirsóttur saxofónleikari í íslensku tónlistarstórfjölskyldunni. Spunatónlist, jazz (djass), stendur hjarta hans næst. Á þeim vettvangi hefur hljómsveitin ADHD vakið verðskuldaða athygli innan og utan landsteina, tónleikaferðir um Evrópu norðanverða skipa stóran sess í lífi hljómsveitarmeðlima. Þeir eru, auk Óskars, bróðir hans Ómar gítarleikari, Magnús Tryggvason Elíasson trommuleikari og Tómas Jónsson hljómborðsleikari. Samstarfs Óskars og Skúla Sverrissonar, tónskálds og bassaleikara, hefur einnig verið gæfuríkt og galopnað augu og eyru Óskars fyrir fleiri möguleikum jazztónlistar. Afraksturinn er tvær plötur og ótal tónleikar.

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger