Listin að skrifa með Einari Kárasyni

Fantasía – Vinnustofa Kjarvals

2. mars

Miðaverð frá

24.900 kr.

Listin að skrifa með Einari Kárasyni

Góðar sögur verða ekki til af tilviljun. Á þessu námskeiði deilir Einar Kárason, einn ástsælasti rithöfundur landsins, reynslu sinni af fjörutíu ára rithöfundaferli. Einar fer yfir hvernig sagan mótast, hvernig sterkur söguþráður verður til og hvernig samtöl geta lifnað við. Hann ræðir sköpunarferlið, hvernig finna má sinn eigin stíl og hvað felst í því að starfa sem rithöfundur til lengri tíma.

Hvað mun ég læra?

Hvernig hefja má feril sem rithöfundur og feta sín fyrstu skref.

Hvernig hugmyndir verða til og þróast í heilsteypta sögu.

Uppbyggingu sterks og grípandi söguþráðar.

Að skrifa raunveruleg og trúverðug samtöl.

Að móta sinn eigin ritstíl.

Fyrir hverja er námskeiðið?

Námskeiðið hentar öllum sem:

Hafa áhuga á skrifum;skáldsögum, smásögum, ljóðum eða öðrum textum.

Vilja bæta sig í uppbyggingu og ritstíl.

Skrifa reglulega í leik eða starfi.

Vilja öðlast dýpri skilning á sköpunarferlinu.

Einar Kárason hefur skrifað fjölda metsölubóka á síðustu fjórum áratugum, þar á meðal þríleikinn Þar sem djöflaeyjan rís, Gulleyjan og Fyrirheitna landið, sem kvikmyndin Djöflaeyjan var byggð á.

Hann hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin fyrir bókina Ofsi og hefur ítrekað verið tilnefndur til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs. Verk hans hafa verið þýdd á fjölmörg tungumál og notið mikillar viðurkenningar bæði hérlendis og erlendis.

Flest stéttarfélög endurgreiða námskeiðsgjöld. Fyrirtæki geta einnig sótt um styrki í gegnum aðrar leiðir.

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger