© 2026 Tix Miðasala

Háskólabíó
•
22. október
Sala hefst
27. febrúar 2026, 10:00
(eftir 2 daga)




Dylan Moran: LOOKING FOR TROUBLE
Mick Perrin Worldwide kynnir
Aldurstakmark: 16+
Það er komið að því. Hvað ætlar þú að gera?
Ætlar þú að fara í vinnuna? Eða liggja áfram í rúminu og reyna að finna fullkomið jafnvægi í lífinu – alsælu? Veistu hvað?
Það er ekkert fullkomið jafnvægi lengur.
Efnahagurinn mun dafna án þín – en hvað ætli þú endist lengi án risavaxna karamellu-latte kaffidrykksins og allra kjaftæðis hlutanna sem þú hefur safnað saman svo þú getir bent á þá og sagt: „Þetta er… lífið mitt?“
Svona, svona, öll þessi dramatík og við erum ekki einu sinni komin út um dyrnar.
Þú getur komist að því hvernig þetta hefði allt getað verið öðruvísi. Þú getur komist að því hvernig þú getur endurheimt líf þitt með því að verða stórhættulegur kickbox-skák meistari. Vertu bara brautryðjandi þegar kemur að nýtísku ástaratlotum á heimsmælikvarða. Gakktu til liðs við nýja sólbrúna yfirstétt af skrilljarðamæringa ljóðskáldum/bökurum/fjallagörpum.
Farðu bara út og LEITAÐU AÐ VANDRÆÐUM.
Glæný gamansýning frá Dylan Moran, BAFTA og Perrier verðlaunahafa og grínista sem áhorfendur kannast við úr gamanþáttunum Black Books.
„Dásamlega kaldhæðið“ ★★★★★ - Metro
„Talar fullkomnlega inn í samtímann“ ★★★★★ - The i
„Frábært“ ★★★★ - Guardian
„Hann yfirbýður Shakespeare og brýtur lífið niður í fjögur stig: „Bernsku, klúður, elli og dauða“. Með því fylgja athugasemdir sem stinga svo að heimurinn virðist skyndilega vera mikið betri staður.“ - ★★★★ - Telegraph

