© 2026 Tix Miðasala
Félagsheimilið Hvammstanga
•
1. - 6. apríl
Sala hefst
24. febrúar 2026, 10:00
(eftir 16 klukkustundir)




Addamsfjölskyldan
Leikflokkur Húnaþings vestra sýnir gamansöngleikinn Addams fjölskyldan um páskana 2026. Leikstjóri og þýðandi er Sigurður Líndal og danshöfundur er Benjamin Di'Ath. Addams fjölskylduna þekkja margir en þetta er engu að síður í fyrsta sinn sem söngleikurinn er sýndur á Íslandi.
Söngleikurinn, byggður á persónum The Addams Family eftir Charles Addams, snýst um það þegar Wednesday Addams gerir hið óhugsandi: hún verður ástfangin af alveg hreint „venjulegum“ strák, Lucas Beineke.
Hún lætur föður sinn, Gomez, lofa að segja Morticiu ekkert – sem er álíka raunhæft og að biðja sprengju um að hvísla. Þegar foreldrum Lucasar er svo boðið í kvöldverð mætast tveir gjörólíkir heimar: sólskinsleg kurteisi Beineke-fjölskyldunnar og dásamlega dimmur veruleiki Addams-ættarinnar.
Leyndarmál springa, dramatík magnast og allt fer úr böndunum með söng og svörtum húmor. Að lokum snýst sagan þó um ást, traust og að samþykkja að það sem er „eðlilegt“ er bara afstætt – sérstaklega þegar fjölskyldan þín elskar myrkrið.
Þetta er fjórði söngleikurinn sem Leikflokkur Húnaþings vestra setur upp en í ár eru tíu ár síðan fyrsti söngleikurinn Súperstar var sýndur. Ekkert er slakað á í framsetningu, frekar en í hinum söngleikjauppfærslunum, en þess má geta að árið 2019 var uppfærsla leikflokksins á Hárinu valin athyglisverðasta áhugaleiksýning af Þjóðleikhúsinu.
Sýningadagar eru 1. apríl, 2. apríl (Skírdagur) , 4. apríl og 6. apríl (Annar í páskum)

