We Will Rock You

Frumleikhúsið

8. - 22. mars

Miðaverð frá

4.500 kr.

We Will Rock You

Söngleikurinn We Will Rock You er saga um frelsi, sjálfsmynd, uppreisn og mátt tónlistar. We Will Rock You er byggður á lögum bresku rokk hljómsveitarinnar Queen. Verkið var frumflutt árið 2002 í London og skrifað af Ben Elton í samstarfi við Brian May og Roger Taylor úr Queen. Þetta er ekki ævisaga sveitarinnar heldur framsækin og húmorísk vísindaskáldsaga sem nýtir tónlist Queen til að segja nýja sögu.

Við erum stödd langt inni í framtíðinni á jörð sem nú kallast iPLANET. Heimurinn er orðinn stöðnuð neysluvél undir stjórn stór fyrirtækisins Globalsoft, sem er stýrt af hinni illu Killer Queen. Globalsoft hefur bannað alla tónlist, öll hljóðfæri, sköpun og sjálfstæða hugsun. Eina tónlistin sem er lögleg er sálarlaust froðu popp, forritað og framleitt af fyrirtækinu sjálfu.

Neðanjarðar kraumar þó uppreisn. Við kynnumst ungum manni, Galíleó Fígaró, sem fellur ekki inn í þessa vélrænu veröld. Hann heyrir tónlist úr fortíðinni sem enginn annar heyrir. Í draumum hans birtast brot af laglínum og textum sem ósjálfrátt flæða upp úr honum í daglegum samtölum. Galíleó kynnist Scaramouche, stúlku sem er einnig utangarðs. Saman ganga þau til liðs við Bóhemana, hóp sem trúir enn á

gamla menningu, tónlist og frelsi. Þau leggja af stað í leit að týnda hljóðfærinu og reyna þannig að frelsa heiminn undan klóm Killer Queen og Globalsoft veldisins. Uppreisnin er hafin.

  • Leikstjóri: Kristín Lea Sigríðardóttir

  • Danshöfundur: Helga Ásta Ólafsdóttir

  • Tónlistarstjóri: Sigurður Smári Hansson

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger