Jón Nordal - Fáheyrð tónlist

Harpa

16. mars

Miðaverð frá

4.000 kr.

CAPUT

Helga Bryndís Magnúsdóttir

Elísabet Waage

Guðni Franzson

Tónleikar helgaðir tónlist Jón Nordals, haldnir í tilefni þess að í mars eru 100 ár liðin frá fæðingu Jóns, eins merkasta tónskáld sem Ísland hefur alið. Hann var einnig frábær píanisti auk þess að stjórna Tónlistarskólanum í Reykjavík – m.a. á þeim árum sem eldri kynslóð Caput-hljóðfæraleikara nam við skólann. Hvort tveggja, tónlistin og skólastjórnin hefur markað djúp spor í íslensku tónlistarlífi.

Helga Bryndís Magnúsdóttir leikur Píanókonsert Jóns frá árinu 1956. Hann frumflutti konsert sinn sjálfur með Sinfóníuhljómsveit Íslands í Þjóðleikhúsinu. Þessi bráðskemmtilegi og glæsilegi konsert hefur örsjaldan verið fluttur. Á tónleikunum verða einnig flutt verkið Brotaspil sem hefur legið í þagnargildi í rúm 60 ár.  Sinfóníuhljómsveitin frumflutti Brotaspil árið 1962 við afar dræmar undirtektir. Þetta er sennilega „módernískasta“ verk Jóns, týndur hlekkur í tónsköpun hans. Magnað verk sem er löngu tímabært að hljómi á ný. Bæði þessi verk hefur Haukur Tómasson útsett fyrir sinfóníettu - á sinn einstaka hátt en þó af fullri tryggð við frumtextann.

Jón Nordal samdi Nocturne fyrir Elísabetu Waage hörpuleikara fyrir útskriftartónleika hennar frá Tónlistarskólanum árið 1987 og hún verður í einleikarahlutverkinu á þessum tónleikum. Helga Bryndís og Elísabet hafa leikið með Caput, nánast frá upphafi.

Til mótvægis við tónlist Jóns verður Ró Önnu Þorvaldsdóttur leikið, verk sem hún samdi fyrir Caput í tilefni Kínaferðar hópsins árið 2013.

Stjórnandi: Guðni Franzson

CAPUT nýtur styrkja frá Tónlistarsjóði og Reykjavíkurborg

Efnisskrá

Jón Nordal: Nocturne fyrir hörpu

Jón Nordal: Brotaspil fyrir hljómsveit (Úts. H.T)

Anna Þorvaldsdóttir: Ró fyrir átta hljóðfæraleikara

Jón Nordal: Concerto per pianoforte e orchestra (Úts. H.T)

Almennt miðaverð er kr. 4000, en námsmönnum býðst að kaupa aðgöngumiðann á kr. 3000 í miðasölu Hörpu.

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger