Bjórkvöld veiðimanna á Selfossi

Miðbar - Selfossi

13. mars

Miðaverð frá

1.500 kr.

Það er eitthvað sérstakt við mars!

Ísinn farinn að bráðna, veiðigræjurnar teknar upp úr geymslu… og taugarnar farnar að titra.

Lausnin? Bjórkvöld veiðimanna á Miðbar föstudaginn 13. mars.

Tvíburabræðurnir Gunni Helga og Ási Helga mæta á svæðið og taka völdin. Þeir leiða pöbb kviss sem snýst um veiði og fleira, þeir henda í happdrætti, draga fram veiðisögur sem eru líklega 60% sannar og 40% stórkostlega ýktar, og halda uppi stemningu sem læknar veiðiskjálftann hraðar en nokkuð annað!

Vinningarnir þetta kvöld verða ekkert grín!

Tvö veiðileyfi fyrir tvær stangir í sumar, flugur, tangir, gjafabréf út að borða og hellingur af dóti sem fær hjartað til að slá aðeins hraðar.

Aðgangur kostar aðeins 1500 krónur og stór bjór fylgir með.

Það er nánast vísindalega sannað að þetta kvöld styttir veturinn um að minnsta kosti eina viku.

Veiðimenn og konur, þetta er kvöldið ykkar.

Takið félagana, makann eða makkerinn með.

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger