© 2026 Tix Miðasala
Harpa
•
22. apríl
Miðaverð frá
4.900 kr.




Silva, söngur og píanó
Steingrímur Karl Teague, söngur, wurlitzer og píanó
Allt frá því að Silva og Steini hittust fyrst yfir eplaköku og svörtu kaffi hafa þau lagt sig eftir því að draga fram hið mannlega, brothætta –– og örlítið myrka ––í söngbók jazzins. Platan More Than You Know kom út árið 2022 við fádæma undirtektir. Síðustu jól kom svo út platan Christmas with Silva and Steini, og breiðskífan More Understanding nú síðasta haust.
Á tónleikunum koma þau fram sem dúett, þar sem áherslan verður lögð á samsöng, og sterka nánd. Lögin koma héðan og þaðan, yfirleitt neðst úr standardaskúffunni, en alltaf eru þetta tón- og textasmíðar sem þola að eimast og endurhugsast, án þess þó að tapa sinni dýrustu glóð.

