Ari Bragi og Eyþór Gunnarsson - Múlinn Jazzklúbbur

Harpa

1. apríl

Miðaverð frá

4.900 kr.

Ari Bragi Kárason, trompet

Eyþór Gunnarsson, píanó

Tveir af fremstu tónlistarmönnum þjóðarinnar, þeir Ari Bragi og Eyþór Gunnars, leiða hér saman hesta sína á þessum tónleikum. Þrátt fyrir að Ari Bragi sé búsettur í Danmörku, þar sem hann starfar með hinu virta danska útvarpsbigbandi (Danish Radio Big Band), hafa þeir Eyþór haldið nánu samstarfi í fjölda ára bæði með tilkomu Ara Braga sem meðlimi hljómsveitarinnar Mezzoforte og einnig með samstarfi þeirra með hljómsveitinni Annes. Á milli þeirra ríkir djúpur tónlistarlegur skilningur og sterkur þráður. Á tónleikunum munu þeir félagar leggja áherslu á efni af nýjustu plötum sínum, Melodies for You og Melodies for Us, sem báðar komu út á síðasta ári við frábærar undirtektir. Gestir geta búist við kvöldi þar sem fallegar laglínur, dýpt og leikgleði ráða för.

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger