ÍMARK DAGURINN 2026

Háskólabíó

6. mars

ÍMARK DAGURINN 2026

ÍMARK DAGURINN 2026 snýst um eitt brýnasta viðfangsefni sem fyrirtæki standa frammi: Hvernig ná má athygli, byggja upp vörumerkjavirði og skila raunverulegum viðskiptalegum árangri í sífellt harðari samkeppni. Um kvöldið blásum við svo til lúðursins með árlegri verðlaunahátíð, þar sem framúrskarandi hæfileikar og árangur markaðsfólks eru heiðraðir.

Þetta er viðburður sem enginn í faginu ætti að láta fram hjá sér fara!

Dagskrá – ÍMARKDAGURINN

Hús opnar: kl 12:00. Ráðstefna hefst stundvíslega kl 12:30 og stendur til 16:30.

---

Formaður ÍMARK og fundastjóri:  inngangur og vangaveltur

ÁRAN - Árangursríkasta auglýsingaherferðin 2025

Lúðraafhending ÁRU og kynning vinningshafa á árangusríkustu auglýsingu ársins.

Auglýsingastofa og vörumerki ársins

Við verðlaunum og kynnum auglýsingastofu ársins og vörumerki ársins. Trausti Heiðar Haraldsson hjá Prósent fer yfir markaðskönnun og álit stjórnenda markaðsmála á Íslandi.

FYRIRLESARAR

  • Vicky Owens: Stofnandi og forstjóri Socially Speaking Media, breskrar markaðsstofu sem vinnur með vörumerkjum á borð við Netflix, Sky og ghd. Vicky sérhæfir sig í því hvernig vörumerki byggja raunverulega athygli og áhrif á samfélagsmiðlum. Hún er margverðlaunaður fyrirlesari, umsjónarmaður hlaðvarpsins Business Class (í efsta 1% á heimsvísu) og hefur byggt upp alþjóðlegt fylgi yfir 250.000 manns.

  • Patrick Fagan: Leiðandi atferlisvísindamaður og metsöluhöfundur, sem vinnur með alþjóðlegum vörumerkjum að því að skilja hvað raunverulega stýrir athygli og ákvörðunum. Patrick útskýrir sálfræðina á bak við „dyravörð heilans“ (The Brain’s Bouncer) og af hverju ákveðið efni – allt frá hvolpum yfir í „banana“ – fær okkur til að hætta að skrolla og gefa athygli.

  • Jon Evans (Uncensored CMO): Einn áhrifamesti markaðssérfræðingur heims, þekktur fyrir beitta nálgun og skýrar tengingar milli sköpunar og arðsemi. Erindi Jon er „The Extraordinary Cost of Dull“. Jon sýnir okkur af hverju það er dýrasta ákvörðun ferilsins að vera leiðinlegur og hvernig sköpunargleði er lykillinn að mælanlegum hagnaði.

Ráðstefnustjóri: Erla Ósk Ásgeirsdóttir

DAGSKRÁ Lúðursins

Fordrykkur: 17:30-18:30

Verðlaunaafhending: 18.30-20:00

Kynnar á Lúðrinum eru: Birna Rún Eiríksdóttir og Snjólaug Lúðvíksdóttir

Dagsetningar

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger