Power Paladin Útgáfutónleikar

IÐNÓ

1. apríl

Miðaverð frá

4.995 kr.

Power Paladin hefur borið íslenskan kraftmálm á herðum sér frá því að hljómsveitin var stofnuð árið 2017. Árið 2022 gaf sveitin út sína fyrstu breiðskífu, With the Power of Windfyre Steel, sem hlaut nánast einróma lof frá þungarokkssenunni jafn á Íslandi og erlendis.

Eftir að hafa lagt land undir fót, spilað á hátíðum innlendis sem erlendis, og unnið hörðum höndum árum saman í þungmálmsnámunum við nýja lagasmíði og upptökur, mun sveitin gefa út sína aðra breiðskífu, Beyond the Reach of Enchantment, 27. Mars næstkomandi.

1. Apríl verða svo haldnir útgáfutónleikar, þar sem platan nýja verður spiluð í heild sinni, ásamt vel völdu eldra efni.

Þrátt fyrir dagsetninguna verða þessir tónleikar ekkert grín, ekki láta sjaldséða kraftmálmsveislu fara fram hjá þér!

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger