© 2026 Tix Miðasala
Iceland Parliament Hotel
•
12. mars
Sala hefst
6. febrúar 2026, 08:00
(eftir 14 klukkustundir)




UPPBROT SVÞ 2026
TÍMI · TÆKNI · TILGANGUR
12. mars 2026 | 13:00–17:30
Parliament Hótel, v/Austurvöll
UPPBROT SVÞ 2026 er árleg ráðstefna Samtaka verslunar og þjónustu og lykilviðburður fyrir stjórnendur og millistjórnendur í verslunar- og þjónustugreinum sem vilja styrkja rekstur sinn í síbreytilegu umhverfi.
Orðið UPPBROT táknar umbreytingu – þar sem eitt tekur á sig nýja mynd.
Árið 2026 snýst Uppbrot ekki aðeins um breytingar, heldur um hvernig við stýrum þeim og náum árangri.
Á ráðstefnu SVÞ í ár skoðum við hvernig stjórnendur og millistjórnendur geta nýtt tækni af skynsemi, eflt mannauðinn og skapað sjálfbæran og árangursríkan rekstur þar sem tími, fólk og gæði skipta máli.
Síðast seldist ráðstefnan upp á mettíma – tryggðu þér miða í tíma.
Hvað gerir UPPBROT SVÞ 2026 sérstaka?
• Fjölbreytt dagskrá með fyrirlestrum, pallborðum og sófaspjalli
• Mannlega víddin og tæknivíddin fá sitt einstaka rými
• Þrjú áherslusvið: Tími · Tækni · Tilgangur
• Reyndir stjórnendur, sérfræðingar og frumkvöðlar úr greininni hittast
• Lifandi umræður, hagnýtar lausnir og skýr framtíðarsýn
Hægt er að sjá nánari dagskrá HÉR

