Kvartett Freysteins Gíslasonar - Múlinn Jazzklúbbur

Harpa

18. mars

Miðaverð frá

4.900 kr.

Helgi R. Heiðarsson, saxófónn

Hilmar Jensson, gítar

Freysteinn Gíslason, bassi

Matthías MD Hemstock, trommur

Kvartett bassaleikarans Freysteins Gíslasonar kynnir nýja plötu Thoughts, sem kemur út hjá Protomaterial Records 20. febrúar. Freysteinn hefur um árabil verið þekktur fyrir að feta sínar eigin slóðir í tónlist og skapa verk sem byggja á persónulegri og einlægri nálgun. Á Thoughts heldur hann þeirri vegferð áfram af enn meiri opnun, þar sem rými og frelsi fá að leiða tónlistina áfram. Platan einkennist af ljóðrænni nálgun þar sem lögin fá að anda og þróast á lífrænan hátt. Freysteinn opnar formið og leyfir ólíkum stemningum að lifa saman — hið fallega, hið skrýtna og hið ómstríða — án þess að setja þeim skýrar skorður. Útkoman er tónlist sem er bæði viðkvæm og kraftmikil, næm og óútreiknanleg í senn. Thoughts er hugleiðing um innra landslag mannsins; hugsanir, mótsagnir og augnablik sem móta okkur. Kvartettinn nálgast efnið með næmri samvinnu, þar sem hlustun og samspil eru í forgrunni. Platan býður hlustendum inn í heim þar sem tími hægist og tónlistin fær að tala á eigin forsendum.

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger