Iðnó Jazz

22. febrúar

Miðaverð frá

2.500 kr.

BJARMI

Bjarni Már Ingólfsson gítarleikari og Tumi Torfason trompetleikari hafa fengið verðskuldaða athygli á íslensku jazzsenunni fyrir dúóverkefni sitt sem þeir hafa þróað frá sumrinu 2021. Dúóið hefur meðal annars leikið á Jazzhátíð Reykjavíkur, Jazzklúbbnum Múlanum og Far Out jazztónleikaseríu Sláturhússins á Egilsstöðum svo ekki sé minnst á ótal tónleika í Mengi við Óðinsgötu.

Þeir eiga það sameiginlegt að leiða báðir eigið tríó með bassaleikaranum Birgi Steini Theódórssyni og trymblinum Magnúsi Trygvasyni Eliassen. Því small þessi kvartett strax saman kringum frumsamda tónlist Tuma og Bjarna sem þeir höfðu allir fjórir spilað en fram að því aldrei sem kvartett. Hið skrifaða fléttað saman við frjálsan spuna í flæði milli strúktúrs og óvissu.

Kvartettinn debúteraði á tónleikum á Loft Hostel á árinu sem var að líða og heldur áfram á nýju ári með framkomu á jazztónleikaseríu Iðnó í Reykjavík og tónleikaferðalagi til Egilsstaða og Neskaupstaðar.

  • Tumi Torfason : trompet

  • Bjarni Már Ingólfsson : gítar

  • Birgir Steinn Theódórsson : kontrabassi

  • Magnús Trygvason Eliassen : trommur

Það er 18 ára aldurstakmark á þennan viðburð.

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger