© 2026 Tix Miðasala

Iðnó Jazz
•
12. apríl
Miðaverð frá
2.500 kr.




Rebekka Blöndal & Andrés Þór
Rebekka Blöndal, söngkona, og Andrés Þór, gítarleikari, flytja fjölbreytta efnisskrá í Iðnó þann 12. apríl. Á efnisskránni verða bæði þekktir jazzslagarar og frumsamin lög.
Rebekka og Andrés hafa unnið saman um árabil og komið fram víða, bæði sem dúett og í stærri hljómsveitum og verkefnum.
Rebekka Blöndal er ein fremsta jazz- og blússöngkona landsins og hefur á undanförnum árum vakið athygli sem söngkona og lagahöfundur.
Andrés Þór hefur verið áberandi í íslensku jazzsenunni og starfað ötullega með sínu eigin tríói og kvartett, auk þess að leika með mörgum af fremstu jazzlistamönnum landsins.
Það er 18 ára aldurstakmark á þennan viðburð.

